Góðan og blessaðan!!
Jæja þá er maður kominn heim frá Florida og ekki get ég sagt að Íslandið góða hafi tekið á vel á móti okkur... það er búið að vera skítakuldi og viðbjóður síðan við lentum... En það var algjör snilld úti og margt brallað... við fórum í nokkra garða og misstum okkur í rússibönum og rennibrautum, versluðum heilan helling og slöppuðum af þess á milli í lauginni heima í Goostry... 

En nú er hversdagsleikinn tekinn við og ég og Steini fórum auðvitað bara að vinna á fullu þegar við komum heim.. Ég er meira að segja byrjuð að vinna í félagsmiðstöðinni í Glerárskóla tvö kvöld í viku og svo er ég ennþá á Símanum eitt kvöld í viku... þannig að það er nóg að gera svo sem.. Steini greyið er reyndar orðinn frekar þreyttur á að vera alltaf einn heima á kvöldin en maður verður að reyna að ná sér í einhverja money...
Svo fengum við hundinn okkar á föstudaginn og við gáfum honum nafnið Hector... Hann er alveg svartur og alveg rosalega fallegur og góður... 
Þannig að núna er Steini nú ekki eins einn heima þegar ég er að vinna á kvöldin og hefur meira að gera..
Nú erum við búin að koma okkur rosa vel fyrir hérna á neðri hæðinni í Hvammshlíðinni og íbúðin orðin rosa sæt og kósý... Verst hvað það eru fáir búnir að koma í heimsókn... 
En svona er þetta.. Annars er lítið annað í fréttum hjá okkur.. Ég geri voða lítið þegar ég er ekki að vinna... Reyni að vera sem mest heima að halda íbúðinni í lagi og vera eitthvað með Steina mínum...
En ég er búin að setja inn myndir frá afmælinu hjá Kiddu og Rakel sem þær héldu uppá 6. apríl... hehe pínu sein í þessu en það er betra en aldrei... 
Svo fer ég að setja inn myndir frá Orlando þegar netið kemur í tölvuna hans Steina því allar myndirnar eru í henni og líka myndirnar af Hector... Reyni svo að vera dugleg að setja inn myndir af honum hérna líka.. 

En ætla að enda á smá sýnishorni af myndunum, mjög svo skemmtilegar myndir, endilega tékkið á þeim...

ég og Steini minn

bestar... ;*

ég og Stella mín.. ohh sakna þín svo... ;(

Steini og Svenni... flottir

bestar.. ;*

ég og Kidda mín...
Jæja þangað til næst..
Freyja Dan
og hvernig væri svo að kvitta fyrir sig 